Thursday, November 15, 2007
Mjöðurinn mærir manninn
vér erum drukknir
og kærum oss eigi
um hversdags hjal.
-pylsa vor er með öllu óæt
og kókið á jörðu komið!
Einir höldum vér heim
bakkusi með.
Ef oss verður eigi
fjötur um fót og hrinjum
í blómabeð.
Þetta er vonleysið
í allri sinni dýrð.
-Mér er ómótt.
Ansans óefni!
Svo má ekki lengur
pissa úti!
-Gnax Blix
Í miðjum bænum
og glymur í tönnum.
Hnédjúpt í kvenndræsum
sem leita að mönnum.
Hver og einn einasti
sínu viti fjær.
Halsandinn hreinasti
undir kvennmanns klær.
Því það veit hver maður
sem meðalsvinnur er.
Að kvennmanssins daður
er satans eiturber.
Heill sé þeim manni
sem mitt á laugarveg,
heldur í sín gildi
og forðast kvenna kvef!
-Gnax Blix
Milli kynslóða
að kindur vorra kinda
munu minnast oss
í fögrum fortíðarljóma.
En geymi oss eigi
í minnum sínum
kaldbláu ljósi
sannleikslampans undir.
- Gnax Blix
Wednesday, November 14, 2007
Ástafar
og trýni hennar sætt sem bolsía
-hann eygði kropp hennar af nautn, þar sem hún stóð öll gróðurlaus,
hann sporksat andlitið.
Hann kveikti sér í sígari.
Mokknum spjó hann innum vit hennar.
Hún kímdi.
Honum varð ómótt, en áttaði sig svo.
Ásýnd hennar var líf hans. Auðmagn hans fyllti hana hamingju.
Þetta var þeirra ást.
Hann drap í sígarnum og þau höfðu gaman.
Álfur Fritz Gerald
Tuesday, November 13, 2007
Mánudags mæða
til heiðurs minningana.
Óljósar en raunverulegar.
-Höfuðverkurinn er því til sönnunar
Foss dynur í höfði mér.
Milli eyrna straumhart fljót.
Náttúruöfl. Fjölkyngi.
-Óútskýranlegt óminni.
Í þrá minni til kæruleysis fyrra ástands
líð ég í þróttleysi mínu
hversdagsstraumi með.
Andi aðskilnn líkama.
Annað sökk en hitt heldur áfram.
Flag
á
botni
sjávar
En er sól rís í fimmta sinn
mun það fljóta upp á ný.
Og bakkusar byr mun fleyta mínu fleyi
á værukærðar mið.
- Gnax Blix
Marensspark
Gin mannsins er fullt
Rennireiðin steypist beina leið eftir teinum tortímingar
Eitrið seitlast upp eftir vöngum mannsins
hugur hans er fullur eftirsjár
Skyndilega rennur á hann hatrömm gríma, hann
spítir
útúr sér
marens
sem hafnar á rist hans -Allt var til einskins og malbikið hafði sigrað.
Álfur F. Gerald
Úr sálarbústað
ð
f
æ
ð
a
s
t
er einsog að stíga um borð í þyrilvængju án
s
t
ý
r
i
m
a
n
n
s -Álfur F. Gerald
Leit spjátrunga !
Brostið hjarta dátans
-þetta vildi hann
Fíkn í beiska lífsreynslu.
Hann er á brott frá raunveruleikanum
Draumsjón hans hverfur
í kolsvartan hil
-Álfur F. Gerald
Flagarar í skjóli sumars
Basískt hjarta
Milta mitt er beintengt helvíti.
Andskotans brauðristin,
hún virkar aðeins
öðru megin!
- Gnax Blix
Náið samband
Vertu hjá mér,
ástin mín. Brátt
mun hjarta mitt
slá lífi í þitt.
Ég er svo nálægur þér,
og þú svo hátt uppi.
Meðal englana.
Ég vil verma þér, með umhyggju minni.
Sem flæðir frjálst
um líf þitt.
-Gnax Blix
Mikilvægi hverra annara
Þú birtist mér í mynd silfurblás fjalllendis.
Ég, einn, ligg undir grun.
Hvarfleitin eilífðin tjörfar sig við hélað hjarta þitt.
Skemmdarverk.
Ég reynist saklaus.
Þig syfjar
-hugur allra fyllist löngun til að svæfa þig,
ég er ekki lengur einn af þeim; ég er ekki lengur Herkúles.
Skipanir eilífðar og þarfir hollara virðast hafa yfirtekið veröld mannskepnunnar.
Mund mín er full blóði!
Ég virðist hafa gleypt við áróðri Plebé.
Plebé matar þá hungruðu, sem skortir vilja og vitsmuni til að afla sér fæðis sjálfir.
Plebé er sjálfur einn þeirra er vilja koma þér til hvílu.
Mér blöskrar!
Þú hugleiðir að sækja slátúrhús náttúrunar heim.
-Álfur F. Gerald
Fimmtudagur
Rafverkur
Rafknúið bryntröll andskotans stingst inní þegar afmyndað milta riddarans
Riddara úr hópi athafnamanna.
Eftir verður auðn.
Endalausti rými.
Rúm fyrir kvalir.
-Álfur F. Gerald
Kveldstund í skálanum
Nafnlaust #1
En samt er eins og hvert mannsbarn eigi að venjast tómu hjarta.
-Án undirbúnings fyllast allir trega.
Líkt og lækur hins látna skógarhöggsmanns, sem unnið hefur sína vinnu,
í skugga þeirra er dansa dans efasemdamannana.
-Álfur F. Gerald
Nafnlaust #2
Ég slæst í för með þeim fáguðu, þeim illkvittnu,
illkvittnu á þann hátt sem þrösturinn er illkvittinn.
Að skilja þá sem standa þér næst er list.
-Upphaf álfabyggðar leið undir lok.
-Álfur F. Gerald
Kvaran
Gruggugur blóðpollur dádýrsins,
stórt safn blágrasa.
-Álfur F. Gerald
Ísflákar úr lífi einbúa
Lífið
er lortur á nýslegnum grasbletti
hamingjunar.
-Gnax Blix
Blóðfljót
Hjarta hrægammsins er öfund mitt
-dauðinn gleður
Frómleikur óhreins hjarta,
myrkur sakleysisins. Kvöl.
Rektu bryntröll eiliífðar gegnum sálu mína
og horfðu á blóðflauma
renna niður holræsið,
á leið til uppruna síns.
- Gnax Blix
