Basískt hjarta
Milta mitt er beintengt helvíti.
Andskotans brauðristin,
hún virkar aðeins
öðru megin!
- Gnax Blix
Náið samband
Vertu hjá mér,
ástin mín. Brátt
mun hjarta mitt
slá lífi í þitt.
Ég er svo nálægur þér,
og þú svo hátt uppi.
Meðal englana.
Ég vil verma þér, með umhyggju minni.
Sem flæðir frjálst
um líf þitt.
-Gnax Blix

No comments:
Post a Comment