Tuesday, November 13, 2007

Kveldstund í skálanum

Nafnlaust #1
En samt er eins og hvert mannsbarn eigi að venjast tómu hjarta.
-Án undirbúnings fyllast allir trega.
Líkt og lækur hins látna skógarhöggsmanns, sem unnið hefur sína vinnu,
í skugga þeirra er dansa dans efasemdamannana.
    -Álfur F. Gerald



Nafnlaust #2
Ég slæst í för með þeim fáguðu, þeim illkvittnu,
illkvittnu á þann hátt sem þrösturinn er illkvittinn.
Að skilja þá sem standa þér næst er list.
-Upphaf álfabyggðar leið undir lok.
    -Álfur F. Gerald


Kvaran
Gruggugur blóðpollur dádýrsins,
stórt safn blágrasa.
   -Álfur F. Gerald

Ísflákar úr lífi einbúa
Lífið
er lortur á nýslegnum grasbletti
hamingjunar.
  
 -Gnax Blix


Blóðfljót

Hjarta hrægammsins er öfund mitt

-dauðinn gleður

 

                    Frómleikur óhreins hjarta,

 myrkur sakleysisins. Kvöl.

 

Rektu bryntröll eiliífðar gegnum sálu mína

                            og horfðu á blóðflauma

                     renna niður holræsið,

                            á leið til uppruna síns.

   - Gnax Blix

No comments: