Thursday, November 15, 2007

Mjöðurinn mærir manninn

Látið þér oss í friði,
vér erum drukknir
og kærum oss eigi
um hversdags hjal.

-pylsa vor er með öllu óæt
og kókið á jörðu komið!

Einir höldum vér heim
bakkusi með.
Ef oss verður eigi
fjötur um fót og hrinjum
í blómabeð.

Þetta er vonleysið
í allri sinni dýrð.

-Mér er ómótt.

Ansans óefni!
Svo má ekki lengur
pissa úti!

-Gnax Blix

1 comment:

hallssonur said...

gömul íslensk drykkjuvísa:

Bjór minn vor,
þú sem ert í flösku,
helgist þitt bragð,
tilkomi þinn mjöður,
freiði þínir humlar
jafnt í könnu sem og glasi.
Gef oss í dag
vora daglegu gleði
og fyrirgef oss vorar syndir
svo sem vér og fyrirgefum
vorum drykkjurútum.
Eigi leið þú oss í þynnku
heldur frelsa oss frá ælu,
því að þín er froðan,
gylltin og gleðin,
að eilífu

Carlsberg!