Skref mín eru ótaktfastur drumbusláttur
til heiðurs minningana.
Óljósar en raunverulegar.
-Höfuðverkurinn er því til sönnunar
Foss dynur í höfði mér.
Milli eyrna straumhart fljót.
Náttúruöfl. Fjölkyngi.
-Óútskýranlegt óminni.
Í þrá minni til kæruleysis fyrra ástands
líð ég í þróttleysi mínu
hversdagsstraumi með.
Andi aðskilnn líkama.
Annað sökk en hitt heldur áfram.
Flag
á
botni
sjávar
En er sól rís í fimmta sinn
mun það fljóta upp á ný.
Og bakkusar byr mun fleyta mínu fleyi
á værukærðar mið.
- Gnax Blix
Subscribe to:
Post Comments (Atom)

2 comments:
Þetta verk þitt svipar mikið til verka Remard Stone að mínu mati. Það er að segja eftir andlát dóttur hans og eiginkonu (sama konan fyrir þá er ekki vita).
Álfur Fritz Gerald
Post a Comment